SEGÐU ÞAÐ MEÐ LEIR
Ragnheiður Ingunn er lærður myndlistarmaður og hönnuður. Hún lauk meistaragráðu í iðnhönnun árið 1998 frá Domus Academy í Mílanó á Ítalíu og diplómu í myndlist árið 1991 frá L’École des Arts Décoratifs (Haute école des arts du Rhin) í Strassborg í Frakklandi. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis.
Öll verk hennar eru handunninn og er því hver hlutur einstakur, leyfir hún handverkinu að njóta sín, hvort sem verkin eru rennd, steypt eða handmótuð.
Verk Ragnheiðar vísa jafnt til hversdagslegra hluta og náttúrulegra forma. Þau sækja innblástur í frumform jarðarinnar og menningarlega þætti, eftirmyndir sem hljóta nýtt hlutverk í samtímanum. Í mótun verkanna liggur örfínn þráður milli náttúru og menningar.
SAY IT WITH CLAY
Ragnheiður Ingunn is an artist and designer who holds a degree in Industrial Design from Domus Academy in Milan, Italy, and a Diploma in Fine Arts from L’École des Arts Décoratifs (Haute école des arts du Rhin) in Strasbourg, France. She has held and participated in numerous exhibitions in Iceland and internationally.
All of her work is handmade, so no two pieces are the same, allowing the making process to stay visible, whether the work is thrown, cast, or shaped by hand.
Ragnheiður’s works reference both everyday objects and natural forms. They draw from primordial geological phenomena as well as cultural influences, replicas reinterpreted with new meaning in the present. In shaping her works, she navigates a delicate thread between the natural and the cultural.